14.6.2010 | 12:45
Brjálæðið heldur áfram hjá Garún! (vika 2)
Jæja jæja...
Annarri viku okkar eyddum við á kaffistofunni við Hverfisgötu þar sem við unnum að skúlptúrum sem sýndir voru á
Föstudagsfiðrildinu síðastliðinn föstudag. Það heppnaðist afskaplega vel og viljum við þakka öllum þeim sem litu við hjá okkur :)
Meðan á sýningunni stóð teiknuðum við stærðarinnar krítarverk á útitaflið við Lækjargötu.
Endilega kíkið á myndirnar sem við vorum að setja inn!
Næst á dagskrá er að sýna 17 júní.
Við munum vera hjá Ráðhúsinu að sýna skúlptúra í litlu tjörninni, fleytum vatnaliljum og gefum blómakransa :)
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kærar kveðjur
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.