7.6.2010 | 12:53
Fyrsta vika Garúnar!
Fyrsta vikan var mjög afkastamikil hjá okkur.
Við byrjuðum á því að koma okkur fyrir í tímabundnu vinnurými okkar í Kaffistofunni við Hverfisgötu.
Þar smíðuðum við á fimmta skúlptúr og sýndum þrjá föstudaginn 4. júní á horni Skólavörðustígs, Bankastrætis og Laugavegs.
Á hverjum degi fórum við í Listasafn Íslands og gerðum verk á krítartöfluna í kjallaranum.
Á ljósmyndunum sem fylgja má sjá hvað gerðist í vikunni.
Svo minnir Garún á að næsta föstudag verður sýning á Útitaflinu við Lækjargötu.
Fylgist með!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.