Ný heimasíða Garúnar.....

Við höfum skipt um heimasíðu......

Nýja síðan er garun.tumblr.com

 Kíkið þangað! :)


Brjálæðið heldur áfram hjá Garún! (vika 2)

Jæja jæja...

Annarri viku okkar eyddum við á kaffistofunni við Hverfisgötu þar sem við unnum að skúlptúrum sem sýndir voru á

Föstudagsfiðrildinu síðastliðinn föstudag. Það heppnaðist afskaplega vel og viljum við þakka öllum þeim sem litu við hjá okkur :)

Meðan á sýningunni stóð teiknuðum við stærðarinnar krítarverk á útitaflið við Lækjargötu.

Endilega kíkið á myndirnar sem við vorum að setja inn!

Næst á dagskrá er að sýna 17 júní.

Við munum vera hjá Ráðhúsinu að sýna skúlptúra í litlu tjörninni, fleytum vatnaliljum og gefum blómakransa :)

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kærar kveðjur

Garún IMG 4869


Fyrsta vika Garúnar!

Fyrsta vikan var mjög afkastamikil hjá okkur.

Við byrjuðum á því að koma okkur fyrir í tímabundnu vinnurými okkar í Kaffistofunni við Hverfisgötu. 

Þar smíðuðum við á fimmta skúlptúr og sýndum þrjá föstudaginn 4. júní á horni Skólavörðustígs, Bankastrætis og Laugavegs.

Á hverjum degi fórum við í Listasafn Íslands og gerðum verk á krítartöfluna í kjallaranum.

Á ljósmyndunum sem fylgja má sjá hvað gerðist í vikunni.

Svo minnir Garún á að næsta föstudag verður sýning á Útitaflinu við Lækjargötu.

Fylgist með!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband